Valdimar Vilhjálmsson

Með sín hugarflug og innlegg.

Fyrirheitna landið?

Eigum við ekki að fara að taka upp þá venju að nýju og mótmæla gerræðislegum ákvörðunum “vinstri stjórnar” Jóhönnu og Steingríms og láta þau og þeirra lið finna til tevatnsins? Þau eru að ganga að heimlum og borgurum dauðum, allt í þei, tilgangi að reka okkur nauðug inn í kommissaraklíku þeirra andlitslausu og steinrunnu í Brussel. Þar gætu ýmsir gengið að bitlingum vísum.

Þessi stjórn hefur verið meðhöndluð sem í bómull væri meðan heimilin sem þau lofuðu að mynda skjaldborg um og að fyrirtækin fengju ívalnanir og vernd. En hvað þá? Allt svikið og þess í stað innheimtuöflum sigað á borgarana með aðferðum handrukkaranna!

Kominn tími á að við rísum upp, og nú skal verða alvörubylting! Jóhanna, Steingrímur, Össur og aðrir hafa ekki staðið sig í stykkinu. Þeim var ætlað að vinna að framgangi okkar landsmanna og gæta hagsmuni þeirra í hvívetna eins og alvöruríkisstjórnir gera.

Ég jafna þessa stjórn við einræðis og alræðisseggja í 3. heiminum sem láta skattborgara sitja á hakanum en vinna þess í stað að gæliuverkefnum sem felast í því að vinna að eigin hagsmunum og sjá í hyllingum að komast á jötuna í Brussell, fyrirleitna landið þeirra.

17. febrúar 2012 | Valdimar Vilhjálmsson | Óflokkað, Stjórnmál | Engin ummæli

Skrif viðvanings á þessu bloggi.

Það er hægara sagt en gert að byrja bloggskrif á nýjum vettvangi sérstaklega fyrir vanafastan mann sem hefur tileinkað sér að nota bloggátt sem á brátt að fara að leggja niður.

Annars er ætlunin að skrifa um það sem hugurinn hvarflar í þá átt hverja stundina, ekkert endilega bundið við sérstakan málaflokk, þau geta verið pólitísk, dægurmál hvers konar og ef andinn lyftir sér á flug, að hugleiða hinstu rök tilverunnar eða bara vera með báða fætur á jörðinni og fjalla um hversdagslegustu mál sem ber á góma hverju sinni.

Ég á heilmikið ólært á þessa vefsíðu, ætla að taka þetta inn smátt og smátt og verð vonandi orðinn liðtækur fyrr en síðar. Þeim sem kunna að nenna að lesa yfir það sem ég kann að setja hér á þrykk er velkomið að leggja orð í belg, ég ætlast ekki til að allir verði mér sammála og allri gagnrýni og andmælum vel tekið.

Nú er að fara að læra á Vísisbloggið og tileinka sér það. Svo má ég ekki gleyma að auglýsa þessa nýju vefsíðu mína sem er http://valdimar.blogg.is/  Hvernig hún mælist svo fyrir er allt önnur Ella!

27. janúar 2012 | Valdimar Vilhjálmsson | Óflokkað, Bloggarar | Engin ummæli

Fyrsta færslan

Velkominn í bloggið þitt á Blogg.is. Þetta er fyrsta færslan þín sem þú getur breytt (eða eytt). Byrjaðu að blogga!

26. janúar 2012 | Valdimar Vilhjálmsson | Óflokkað | 2 ummæli