Valdimar Vilhjálmsson

Með sín hugarflug og innlegg.

Skrif viðvanings á þessu bloggi.

Það er hægara sagt en gert að byrja bloggskrif á nýjum vettvangi sérstaklega fyrir vanafastan mann sem hefur tileinkað sér að nota bloggátt sem á brátt að fara að leggja niður.

Annars er ætlunin að skrifa um það sem hugurinn hvarflar í þá átt hverja stundina, ekkert endilega bundið við sérstakan málaflokk, þau geta verið pólitísk, dægurmál hvers konar og ef andinn lyftir sér á flug, að hugleiða hinstu rök tilverunnar eða bara vera með báða fætur á jörðinni og fjalla um hversdagslegustu mál sem ber á góma hverju sinni.

Ég á heilmikið ólært á þessa vefsíðu, ætla að taka þetta inn smátt og smátt og verð vonandi orðinn liðtækur fyrr en síðar. Þeim sem kunna að nenna að lesa yfir það sem ég kann að setja hér á þrykk er velkomið að leggja orð í belg, ég ætlast ekki til að allir verði mér sammála og allri gagnrýni og andmælum vel tekið.

Nú er að fara að læra á Vísisbloggið og tileinka sér það. Svo má ég ekki gleyma að auglýsa þessa nýju vefsíðu mína sem er http://valdimar.blogg.is/  Hvernig hún mælist svo fyrir er allt önnur Ella!

27. janúar 2012 | Valdimar Vilhjálmsson | Óflokkað, Bloggarar | Engin ummæli